Sesselja er fædd og uppalin í Ólafsvík, þar sem Snæfellsjökull rís hæstur fjalla og fjöllin nema við sjó og sjórinn endar við sólarlag og sólarupprás. Hún lék sér, sem barn við leik úti í náttúrunni, hvort sem það var við sjóinn eða upp á fjöllum. Í uppeldi hennar naut hún þess að hlusta á þjóðsögur um drauga, tröll og huldufólk.
Hún lauk Bed gráðu í myndlistarkennslu við Kennaraháskóla Íslands (1991-1994) og í beinu framhaldi að því námi lágu leiðir hennar í Listháskóla Íslands þar sem hún lauk Bfa prófi árið 1999. Þegar hún var í námi sínu í LHÍ dvaldi hún sem skiptinemi í þrjá mánuði í Winchester School of Arts í Winchester í Englandi, en sá skóli er í samvinnu við Royal Academy of London. Þar naut Sesselja fræðslu fyrsta flokks listamanna ásamt safnaferðum til London, Amsterdam og Parísar.
Útskriftarverk Sesselju voru tvö málverk og ein stór teikning af Ragnhildi frænku hennar. Hún málaði hana eins og hún væri að kanna annað tilverustig, ekki stödd í tíma og rúmi heldur flögraði um á vit ævintýranna eins og Sesselja hafði oft upplifað á sínum uppvaxtarárum í nátturunni.
Síðan Sesselja útskrifaðist hefur hún fengist við að mála landslag og þá sérstaklega Snæfellsjökul ásamt því að vinna með ljósrit og ljósmyndir af fólki sem hún málar.
Vinnustofa Sesselju er í Kópavogi, en þar hefur hún óheft útsýni á Snæfellsjökul.
Eftir tveggja ára hvíld frá myndlistinni snýr Sesselja aftur til listagyðjunnar og tekur þátt í tveimur samsýningum, sem opna sama dag, þ.e. 17. júní 2005. Ein samsýning í Galerieazero.com í Barcelona á Spáni og síðan ?Gullkistan? listahátíð á Laugarvatni.
Í þessum verkum sínum notar hún blandaða tækni á striga þar sem hún vinnur með ljósrit, teikningar ásamt málun með akríl og olíu.
Verkin eru sprottin upp af hugleiðingum Sesselju um traust á hennar eigin skynjun og þeirri hugmyndafræði að sanna vitneskju sé aðeins að finna innra með okkur sjálfum. Bera kennsl á röddina í eigin hjarta. Þora að vera til sem hluti af öllum heiminum, sem þátttakandi í einu stóru andlegu ferli. Andleg vera sem vex upp úr sameiginlegum, óendanlega frjóum jarðvegi með virðingu og tengingu við umhverfi sitt. Sesselja hélt áfram að taka þátt í samsýningum og sýndi á Strasbourg ?Islande, forces de la terre, forces de l?espric, í nóv. 2005. Á þessu ári tók Sesselja þátt í sýningu á Vetrarlistahátíð í Gallerí Loka og í afmælissýningu Stigamóta en sú sýning mund standa í eitt ár. Á Stigamótum er Sesselja með fimm myndir. Sesselja er með í vinnslu þriðju einkasýningu sýna en hún verður í Pakkhúsinu í Ólafsvík og mun opna á degi Sjómanna þann 11. júní 2006.
Menntun/Education:
1979-1984 Stúdent, Menntaskólinn við Sundið, Ísland
1991-1994 Kennaraháskóli Íslands/Bed,
1994-1995 Listháskóli Íslands, fornám,
Samsýningar/Group exhibitions
1999 Gallerí Nema hvað, Rvk, Ísland
1999 Sparisjóður Garðabæjar, Ísland Ísland
1999 Gallerí Listakot,
2000 Gallerí Fold,
2001 Hótel Eldborg, Snæfellsnes, Ísland
2001-2002 Gallerí Snegla,
2002 Gallerí List,
2003 Gallerí Fold,
2004 Háskólabíó,
2005 Galeriazero,
2005 Listahátíð á Laugarvatni ?Gullkistan?, Ísland
2005 Galerie du Sofitel, Island,forces
forces de l?espric,
2006 Gallerí Loki, Vetrarlistahátíð, Reykjavík.
2006 Stigamót, afmælissýning, Reykjavík.